↙ Slippfélagið — vefsíðumynd
Slippfélagið
Ný vefsíða fyrir eitt af elstu fyrirtækjum Íslands
Stílhrein vefsíða fyrir Slippfélagið sem hefur yfir 120 ára sögu og er eitt þekktasta vörumerki landsins.
Unnið af þýskri nákvæmni í Reykjavík. Vefir fyrir fyrirtæki, félagasamtök og skapandi verkefni.
↙ Slippfélagið — vefsíðumynd
Ný vefsíða fyrir eitt af elstu fyrirtækjum Íslands
Stílhrein vefsíða fyrir Slippfélagið sem hefur yfir 120 ára sögu og er eitt þekktasta vörumerki landsins.
↙ Norðurflug — vefsíðumynd
Ný vefsíða fyrir elsta þyrlufyrirtæki Íslands
Endurhönnun á vefsíðu stærsta þyrluferðafyrirtækis Íslands. Bætt notendaupplifun og einfaldara bókunarferli. Verkefnið var unnið á meðan ég starfaði hjá Opnum Kerfum.
↙ Farabara — vefsíðumynd
Nýr upplýsingavefur um nám erlendis
Glænýr og notendavænn vefur um nám erlendis, byggður frá grunni. Sérsmíðuð síun eftir löndum gerir nemendum kleift að finna allar upplýsingar um reglur, styrki og umsóknir á einum stað. Verkefnið var unnið á meðan ég starfaði hjá Opnum Kerfum.
↙ Iceland Photos — vefsíðumynd
Vefsíða fyrir ljósmyndara og leiðsögumann
Vefsíða fyrir Lisu, ljósmyndara og leiðsögumann, þar sem ljósmyndasafn hennar og ferðir koma saman á einum stað. Hönnun síðunnar setur ljósmyndir hennar í forgrunn og eru allar myndirnar á síðunni hennar eigin.
↙ Where to Learn Icelandic?! — vefsíðumynd
Allt íslenskunám á einum stað
Samantekt af námsefni fyrir íslenskunám. Á vefnum hafa verið tekin saman ýmis konar námsgögn, námskeið og fleira, ýmist ókeypis og sem kosta. Eigið verkefni.
↙ Icelandic Combat Theatre — vefsíðumynd
Vefsíða fyrir fyrstu fjölbragðaglímusýningu Íslands
Vefsíða fyrir Icelandic Combat Theatre, fyrstu fjölbragðaglímu-promotion landsins. Síðan kynnir glímukappana, segir frá komandi viðburðum og býður áhugasömum að skrá sig í æfingar.
↙ Purine Pal — vefsíðumynd
Vefforrit fyrir heilbrigði dalmatíuhunda
Gagnagrunnur um púrínmagn í matvælum, byggður á rannsóknum. Dalmatíuhundar eiga erfitt með að vinna úr púríni og með leitinni geta eigendur séð hvaða matur er öruggur fyrir hundinn sinn. Eigið verkefni.
↙ Grotenburg Supporters — vefsíðumynd
Vefsíða fyrir stuðningsmannaverkefni í Þýskalandi
Vefsíða fyrir hóp stuðningsmanna sem hjálpaði til við endurbætur á hinum sögufræga Grotenburg-leikvangi í Krefeld, heimavelli KFC Uerdingen. Síðan var notuð fyrir fréttir, skipulagningu vinnudaga og fjölmiðlaumfjöllun en endurbótum á leikvanginum er nú lokið. Unnið í sjálfboðavinnu.
Skildu eftir nokkrar línur og við svörum innan tveggja virkra daga. Alltaf manneskja, aldrei spjallmenni.